Mörgum þykir leiðinlegt og vesen að steikja fisk og forðast að gera það út af brælu og sóðaskap.
En hér er stórsniðug aðferð og þú munt ekki vilja steikja fisk á annan hátt eftir að hafa prófað.
Þetta er frábær aðferð, engin bræla sem fylgir eldamenskunni og fiskurinn verður fullkominn í hvert einasta skipti!
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
- íslenskt smjör (ekki spara það!)
- ýsa eða þorskur í raspi
- 1-2 laukar
Aðferð
Hitið ofninn í 200°.
Skerið laukinn í þunna báta.
Setjið smjör í bitum og lauk í botninn á eldföstu móti.
Raðið fiskinum yfir og setjið smjörklípur yfir fiskinn.
Látið síðan inn í ofn í 20 mínútur og málið er dautt! (Það má líka stilla á grillstillinguna síðustu mínúturnar).
Takið út og njótið!