Hún var 45 ára þegar hlutirnir fóru að gerast og hún var komin yfir fimmtugt þegar hún virkilega slóg í gegn – sem undirstrikar það sem við segjum hér á Kokteil, það er aldrei of seint að láta draumana rætast.
Var komin langt á þrítugsaldurinn þegar hún byrjaði
Hún hóf þó fyrirsætuferil sinn þegar hún var komin langt á þrítugsaldur, sem er auðvitað frekar seint því þá er ferillinn oft að verða búinn hjá fyrirsætum.
Yasmina Rossi fæddist í Frakklandi, ólst upp á eyjunni Korsíku en elti drauminn til New York þegar hún var 45 ára og síðan hefur fyrirsætuferillinn legið upp á við.
Hvert er leyndarmálið?
Því verður ekki neitað að Yasmina lítur ótrúlega vel út enda vilja allir vita leyndarmálið á bak við glæsilegt útlit hennar. Hún segir þetta ekkert leyndarmál og í raun ósköp einfalt því hún hafi ætíð borðað lífrænt, löngu áður en það varð vinsælt. Hún hreyfir sig reglulega og hóflega en alls ekki of mikið, skrúbbar húðina einu sinni í viku með ólífuolíu og fínum sykri. Þá segist hún borða eitt avókadó á dag og neyta lífræns kjöts og fisks.
Yasmina leggur áherslu á að það sé mikilvægt að æfa ekki of mikið og þá forðast hún að taka lyf. Hreyfing hennar felst í gönguferðum og jóga
En þetta glæsilega og fallega gráa hár, hvað skyldi hún gera við það? Jú, hún notar repjuolíu í það.
Er þá ekki bara málið að eiga nóg af olíu og avókadó í skápunum!
Yasmina er glæsileg
Og þetta fallega gráa hár
Eftirsótt fyrirsæta
Hér má sjá stutt viðtal við Yasminu