Hann hafði ekki látið klippa hár sitt í 20 ár og var með mikið skegg og þykkar augabrúnir.
En þegar Roger og kærasta hans trúlofuðu sig langaði hann að gleðja hana með því að gera breytingar á útlitinu.
Hafði aldrei séð hann öðruvísi
Og það sem gerir þetta enn sérstakara er að unnusta hans hafði hvorki séð hann án skeggs né án síða hársins í þau þrettán ár sem hún hafði þekkt hann.
Breytingin eftir yfirhalninguna er stórkostleg og undir öllu hárinu var þessi stórmyndarlegi maður. Enda öskrar þáttastjórnandinn af ánægju yfir því hversu flottur og sjóðandi heitur hann er.