Svona stór og gróf teppi eru virkilega flott og notkunarmöguleikar þess eru ótalmargir.
Það er til dæmis mjög smart að leggja svona teppi á rúmendann ofan á sængina eða rúmteppið – og þau er mjög flott til að leggja í sófann.
Gerðu það sjálf/ur
En það sem er mesta snilldin við þau er að það tekur ekki nema um fjóra tíma að gera eitt svona stykki. Það þarf reyndar sérstaklega gróft efni í þau enda teppin alveg einstaklega gróf. Og þetta er allt gert í höndunum, sem sagt þú notar handleggina sem prjóna.
Hér er komin frábær jólagjöf handa þínum nánustu. Þetta er frábær gjöf sem þú getur búið til sjálf/ur.
Mjög smart á rúmendann.
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert