Svona ostakúlur vekja óneitanlega alltaf upp nostalgíu hjá okkur, enda eitthvað sem var alveg óskaplega vinsælt hér áður fyrr.
En ostakúlurnar eru alltaf jafn góðar og eiga alltaf við, jafnt í dag sem áður.
Frábært í veisluna
Og þessi ostakúla hér er brjálæðislega góð en uppskriftina fengum við hjá henni Svövu vinkonu okkar á Ljúfmeti og lekkerheit.
Væri ekki tilvalið að prófa þessa um helgina eða fyrir næstu veislu – því ostakúlur eru frábærar í stærri sem smærri veislur.
Pekanhjúpuð ostakúla
- 500 gr philadelphia rjómaostur (við stofuhita)
- 250 gr maukaður ananas í dós (crushed)
- 1/2 bolli græn paprika, hökkuð fínt
- 2 msk vorlaukur, hakkaður
- 1/3 bolli pekanhnetur, hakkaðar
- 1 tsk Lawry´s seasoned salt
- 3/4 bolli pekanhnetur, hakkaðar
Aðferð
Blandið saman mjúkum rjómaosti, maukuðum og afrunnum ananas, papriku, vorlauki, 1/3 bolla af hökkuðum pekanhnetum og salti.
Notið sleif og mótið ostablönduna í skálinni.
Setjið filmu á borð og dreifið 3/4 bolla af hökkuðum pekanhnetum yfir.
Setjið ostakúluna yfir og veltið upp úr hnetunum þannig þær hjúpi kúluna.
Pakkið pekanhjúpaðri kúlunni inn í plastfilmuna og geymið í ísskáp þar til hún er borin fram.
Berið fram með kexi.