Viltu losna við krumpur og spara þér tíma?
Og finnst þér hundleiðinlegt að strauja?
Farðu þá í frystinn og náðu þér í klaka því svona losnarðu við krumpurnar úr flíkunum þínum.
Einfaldar og hentugar lausnir
Við erum alltaf að leita einfaldra og hentugra lausna til að spara okkur tíma til að geta notað hann í eitthvað skemmtilegra en húsverkin. Og þetta er svo sannarlega eitt af því.
Ef þú hugsar eins og við þá endilega kíktu á myndbandið hér að neðan – og þetta er ekki fyrir blautu flíkurnar heldur þær þurru!
Á meðan þurrkarinn sér um slétta úr flíkinni getum við notað tímann í að blása hárið, glugga í bók eða kíkja inn á Kokteill.is