Þótt okkur langi til eða við trúum því að öllum líki við okkur þá er það ekki þannig. Það eru og munu alltaf vera einhverjir sem bara líkar ekki við þig. Og þetta er staðreynd hvort sem okkur líkar betur eða verr.
Sama hvað þú reynir
Alveg sama hversu mikið þig langar til og sama hversu mikið þú reynir að gera þessu fólki til geðs – því mun samt ekki líka við þig. En veistu hvað – það er bara í góðu lagi!
Hættu að reyna og að eyða dýrmætum tíma þínum í það og að velta því fyrir þér af hverju viðkomandi líkar ekki við þig. Þú munt líklega aldrei skilja það og það skiptir ekki heldur nokkru máli. Sættu þig því við það. Svona er lífið og við mannfólkið erum eins ólík og við erum mörg.
Svo eru það allir hinir
En svo eru það allir hinir sem virkilega líkar vel við þig. Þú finnur strauminn, tenginguna og orkuna sem tengir ykkur saman. Eitthvað alveg ósýnilegt en samt svo frábært. Þetta er þitt fólk! Eyddu frekar tíma þínum í þessa einstaklinga heldur en að velta þér upp úr því af hverju öllum hinum líkar ekki við þig.
Þeir sem hafa áhuga á þér, þeir sem gefa þér orku, þeir sem bera hag þinn fyrir brjósti og þeir sem finnst þú skemmtileg/ur og áhugaverðu/ur – þetta er þitt fólk. Og það sem er enn betra er að þú getur gefið þeim svo margt tilbaka ef þú notar tíma þinn í að staldra við og meta þessa einstaklinga í stað þess að rembast við að gera öllum hinum til hæfis. Því allir hinir skipta ekki nokkru máli.