Það er tilvalið að nota ofþroskuðu bananana í þessar ljúffengu og mjúku múffur. Þær eru einfaldar í gerð og eitthvað sem öllum fjölskyldumeðlimum finnst gott.
Bananar og súkkulaði passa auðvitað einstaklega vel saman svo þetta er alveg skothelt. Síðan vitum við auðvitað öll hversu hollir bananar eru.
Það sem þarf
3 vel þroskaðir bananar (maukaðir – um 1 bolli)
2 bollar hveiti
2 ¼ tsk lyftiduft
1 tsk gróft sjávarsalt
¼ tsk kanill
¾ bolla púðursykur
113 gr ósaltað smjör, bráðið
1 stórt egg
¼ bolla mjólk
1 bolla súkkulaðidropa, eða saxað súkkulaði
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Finnið til 12 múffuform.
Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kanil saman í skál.
Setjið banana, egg, sykur, smjör og mjólk í aðra skál og hrærið saman.
Blandið bananablöndunni saman við þurrefnin og hrærið vel saman.
Bætið síðan súkkulaðdropunum út í skálina og hrærið saman við deigið.
Skiptið deiginu jafnt í múffuformin.
Bakið í um 20 mínútur og takið þá út of leggið á grind.
Leyfið múffunum aðeins að kólna.
Njótið!
Sjáðu betur hér í myndbandinu hvernig þetta er gert
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com