Smákökur og jólin er eitthvað svo samofið enda smákökubakstur fastur liður á þessum tíma árs.
Jólabaksturinn er kominn á fullt á mörgum heimilum og einhverjir búnir að baka nokkrar sortir.
Sætar og mildar
Okkur finnst alltaf jafn gaman að prófa nýjar smákökuuppskriftir og hér er ein frá henni Svövu vinkonu okkar á Ljúfmeti og lekkerheit.
Þetta eru sætar og mildar sítrónusmákökur sem eru stökkar að utan og seigar að innan.
Það sem þarf
- 125 gr smjör við stofuhita
- 200 gr sykur
- 1/2 tsk vanilludropar
- 1 egg
- 1 tsk sítrónuhýði
- 1 msk ferskur sítrónusafi
- 1/4 salt
- 1/4 tsk lyftiduft
- 1/8 tsk matarsódi
- 200 gr hveiti
- 75 gr flórsykur
Aðferð
Hitið ofninn í 175°.
Hrærið smjör og sykur saman þar til það verður ljóst og létt.
Hrærið vanilludropum, eggi, sítrónuhýði og sítrónusafa út í.
Skafið niður með hliðunum og hrærið áfram.
Bætið þurrefnunum, fyrir utan flórsykurinn, rólega saman við þar til allt hefur blandast. Ekki hræra lengur en þörf er á.
Hellið flórsykri á disk.
Mótið kúlu úr teskeið af deigi (ath. deigið er mjög mjúkt og blautt) og veltið upp úr flórsykri.
Leggið kúluna á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
Endurtakið með afganginn af deiginu.
Bakið í 9-11 mínútur.
Njótið á aðventu og jólum.