Fyrirtækið sem framleiðir hinar heimsfrægu Barbie dúkkur, Mattel Corporation, hefur sent frá sér nýja tegund af dúkkum á markaðinn. Loksins er hægt að kaupa Barbie dúkkur sem hafa svolítið utan á sér.
Dúkkur með línur
Lengi hefur vöxtur upprunalegu dúkkunnar verið gagnrýndur og sagður hafa neikvæð áhrif á ungar stúlkur og hugmyndir þeirra um líkamsmynd. En til að svara þessari gagnrýni hefur Mattel sett á markaðinn The curvy Barbies. Ses sagt Barbie dúkkur með línur.
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og hefur nýja Barbie dúkkan slegið í gegn og erum við á Kokteil viss um að þessi muni seljast upp á skömmum tíma.
Sjáðu, nú er hægt að fá allskonar Barbie dúkkur.
Hávaxnar Barbie
Og smávaxnar Barbie
Sjáðu líka Er þinn líkami í tísku núna? HÉR