Læknirinn Ellen Elg er söguhetja skáldögunnar Líf eða dauði sem nýlega kom út hjá Bókaútgáfunni Sölku. Komnar eru út fimm bækur um Ellen á sænsku og er þetta sú fyrsta í bókaflokknum. Hér segir frá kvennakúgun og baráttu upp á líf og dauða við skilyrði sem fáir Vesturlandabúar geta ímyndað sér. Í þessari spennandi skáldsögu er dauðinn nálægur við hvert fótmál og blóðið rennur.
Á sóðalegum stöðum í Afríku blæðir ótal ungum stúlkum út vegna ólöglegra fóstureyðinga – mörgum eftir nauðgun. Þrjár konur í Svíþjóð hafa tekið til sinna ráða og vinna ötult hjálparstarf, bæði heima og í Afríku. Ein þeirra, Ellen Elg, lendir hvað eftir annað í lífshættu í viðleitni við að bæta ástandið á staðnum. Hún fer reglulega til Sambíu til að fræða um getnaðarvarnir, framkvæma fóstureyðingar og hjálpa konum sem hafa farið í ólöglegar fóstureyðingar. Ólíklegustu aðilar leggja stein í götu hennar og atburðarásin tekur óvænta stefnu.
Höfundurinn, Karin Alfredsson, hefur sjálf starfað í Afríku sem blaðamaður og þekkir aðstæður frá fyrstu hendi. Hér segir hún frá kvennakúgun og baráttu upp á líf og dauða við erfið skilyrði. Í þessari spennandi skáldsögu er dauðinn nálægur við hvert fótmál og blóðið rennur. Karin fékk verðlaun árið 2006 sem veitt eru þeim höfundi sem þykir hafa skrifað bestu frumraun sína á glæpasagnasviðinu það árið í Svíþjóð.
Úr gagnrýni Önnu Lilju Þórsdóttur í Morgunblaðinu um Líf eða dauði:
„Þetta er óvægin bók, sá hluti hennar sem gerist í Sambíu er til dæmis afar áhrifamikill, lyktin, hitinn og neyðin nánast áþreifanleg og hér er lýst tilveru sem fáir í okkar heimshluta geta ímyndað sér.“