Við höfum öll heyrt um andoxunarefni, en hafið þið heryt um móður allra andoxunarefna?
Þetta efni er leynivopnið til að koma í veg fyrir krabbamein, hjartasjúkdóma, öldrun, taugasjúkdóma og margt fleira.
Mikið rannsakað
Þetta eina andoxunarefni hefur verið rannsakað mikið og lengi en flest okkar vita samt ekkert um það og margir læknar vita ekki hvernig er best að vinna það upp í líkamanum.
Efnið sem um ræðir heitir Glutathione (borið fram gloota-thigh-own).
Þetta er afar öflugt efni sem hreinsar líkamann og styrkir ónæmiskerfið svo um munar og er afar mikilvægt til að við getum lifað heilbrigðu lífi.
Líkaminn framleiðir lítið magn af Glutathione sjálfur en lélegt mataræði, mengun, stress, sýkingar og geislun í umhverfinu eru að eyða því jafnóðum úr líkamanum.
Hvað er Glutathione?
Glutathione er einföld sameind, framleidd stöðugt á náttúrulegan hátt í líkamanum. Þetta er blanda af þremur efnum sem eru til uppbyggingar á próteini eða amino sýrum – cysteine, glycine og glutamine.
Besti parturinn af glutathione er sá að það inniheldur efni kallað súlfur og þetta tiltekna efni fangar allt það slæma sem líkaminn dregur í sig, má þar nefna t.d eiturefni eins og mercury og þungmálma og skolar sulfur þessu í burtu. Þetta skiptir okkur afar miklu máli í dag því andrúmsloftið okkar er stútfullt af þungmálmum.
Hvernig nærðu í þetta öfluga efni ?
Eins og áður kom fram að þá framleiðir líkaminn þetta efni en ekki í miklu mæli. Allavega ekki næginlega miklu til að það sé okkur til góða eins og heimurinn er í dag.
Hérna eru nokkrar fæðutegundir sem að innihalda þetta magnaða efni:
Brokkólí
Rósakál
Grænkál
Blómkál
Avocado
Ferskjur
Vatnsmelónur
Kanill
Kardimommur
Turmeric
Tómatar
Baunir
Hvítlaukur
Laukur
Rauð paprika
Þú tekur eflaust eftir því að þetta er allt hollustufæði sem við erum oft ekki nægilega dugleg að borða. Og þetta er annað mál varðandi mataræði okkar. Við borðum of mikið af ruslmat, mjólkurvörum og unnum mat. Mat sem sannað hefur verið að…
Lestu meira HÉR