Eins hollar og góðar appelsínur eru þá verðum við að viðurkenna að helsta ástæða þess að við borðum ekki eins mikið af þeim og við vildum er sú að okkur finnst svo agalega leiðinlegt að skræla þær.
Svo ef þið eruð eins og við þá er þessi aðferð hér algjör snilld!
Með þessari aðferð er maður laus við klístur á puttum og endalausa notkun á servíettum – því þetta er svo einfalt og þægilegt.
Nú er engin afsökun fyrir því að fá sér ekki appelsínu.