Þessi mynd hefur farið um netheima undanfarið og á fólk í erfiðleikum með að sjá hver þeirra þriggja er móðirin. Ekki gátum við það.
Hér eru tvíburasysturnar Kaylan og Kyla með móður sinni Tinu. Þær tóku þessa mynd af sér og settu á Twitter og boltinn fór að rúlla.
Eru svo líkar
Þær eru allar svo líkar og gætu hæglega verið systur en ekki mæðgur. Móðirin er 35 ára og dæturnar 16 ára. En hvað ætli móðirin geri til að halda sér svona unglegri? Ekkert! Hún segir þetta vera í genunum því margir í fjölskyldunni líti út fyrir að vera yngri en þeir eru.
Já, og ef þú ert ekki enn búin/n að fatta hver móðirin er þá er það þessi í svörtu fötunum vinstra megin.
Sjáðu HÉR Ert þú svo heppin/n að vera með æskugenið?