Þegar þú ert í Róm hagaðu þér þá eins og Rómverji segir orðatiltækið.
Sinn er siður í landi hverju og það sem þykir alveg eðlilegt og sjálfsagt í einu landi þykir dónalegt og passar kannski engan veginn í því næsta.
Hér til gamans tökum við 11 ólík lönd og skoðum hvað ætti að forðast að gera – eða hvað ætti endilega að gera.
Japan
Ekki skilja eftir eða gefa þjórfé.
Japanir eru stolt þjóð og vilja veita bestu mögulegu þjónustuna án þess að fá aukalega greitt fyrir það. Þjórfé fyrirfinnst ekki í þeirra menningu.
Bandaríkin
Ekki gleyma að skilja eftir þjórfé.
Þjórfé er regla í Bandaríkjunum og oft er það tilgreint á reikningnum hversu mikið þú ættir að gefa. Þjónustufólkið hefur ekki há laun og treystir því á þjórféð.
Kína
Ekki færa einhverjum klukku eða regnhlíf að gjöf.
Það er talið boða ógæfu þegar fólk fær þessa hluti að gjöf.
Ítalía
Ekki panta þér cappucino á veitingastað eftir góða máltíð.
Þú getur svo sem alveg pantað þér cappucino – en þjónarnir verða mjög hissa því cappucino er ekki drukkið eftir mat á Ítalíu.
Frakkland
Hvorki tala um né spyrja út í fjármál og peninga.
Það er reyndar alltaf dónaskapur að spyrja út í fjármál annarra en í Frakklandi þykir það sérstaklega dónalegt.
Bretland
Ekki spyrja fólk út í það hvað það þénar.
Þú lætur fólki bara líða illa með því – svo kemur þér það heldur ekki við.
Írland
Ekki reyna að herma eftir írskum framburði.
Írum finnst þeir sjálfir ekkert hafa öðruvísi framburð en aðrir. Svo er heldur aldrei fyndið að gera grín að íbúum þess lands sem maður heimsækir.
Síle
Ekki borða með fingrunum eða tína upp í þig með því að nota eingöngu hendurnar.
Hér eru góðir mannasiðir í hávegum hafðir.
Þýskaland
Ekki óska fólki til hamingju með afmælið daginn fyrir afmæli.
Það er hjátrú að það boði ekki gott og að manneskjan nái ekki að lifa afmælisdaginn.
Tyrkland
Ekki gera og sýna OK-merkið/táknið í Tyrklandi.
Sú handahreyfing hefur allt aðra meiningu þar og þykir mjög dónaleg.
Úkraína
Ekki færa einhverjum slétta tölu af blómum.
Fólk í Úkraínu fer með slétta tölu af blómum í kirkjugarðinn.