Með öll þessi krem, tónera, allskyns serum og fleira þá er kannski ekkert skrýtið að það sé hægt að verða örlítið ringlaður á því hvað á að fara fyrst á húðina.
Þumalputtareglan er þessi
Þú berð kremin á þig frá þynnsta til þykksta. Sem dæmi, rakakremið fer síðast á því það er þyngst.
Gott er einnig að hugsa um þetta eins og að bera á sig nokkur lög af kremi. Ef þú ert t.d að nota krem við meðferð á bólum þá skaltu bera það á þig fyrst, þ.e. á undan rakakreminu.
Hér að neðan eru ráð um hvernig best er að bera húðvörurnar á sig skref fyrir skref
Á MORGNANA
1. Húðhreinsir
Byrjaðu morguninn á því að nota mildan hreinsi. Húðin þarf vanalega ekki mikinn þvott á morgnana svo það má einnig nota volgt vatn.
2. Tónerinn
Hreinsirinn gerir húðina hreina og það þarf að nota tóner á eftir til þess að vera viss um að öll óhreinindi á fita séu á brott. Forðastu að nota sterkan tóner sem inniheldur alkahól.
3. Serum (má sleppa)
Næst er gott að einbeita sér að þeim stöðum á húðinni sem eru til vandræða. Serum eru frábær leið til að jafna húðina, fríska upp á hana og draga úr fínum línum.
4. Rakakrem með SPF
Hvernig sem húðin þín er þá skiptir rakakrem miklu máli. Og mundu að nota rakakrem sem inniheldur SPF daglega. Ef húðin er mjög þurr þá skaltu nota feitara rakakrem sem oft er gott að gera þegar mjög kalt er í veðri.
5. Krem fyrir augnsvæðið
Berðu krem fyrir svæðið í kringum augun síðast, á eftir rakakreminu. Það er mjög gott að nota augnkrem og skiptir þá ekki máli á hvaða aldri þú ert. Augnkrem vinnur á fínum línum í kringum augun og gefur augnsvæðinu aukin raka.
Á KVÖLDIN
1. Húðhreinsir
Byrjaðu á að nota húðhreinsinn og notaðu hreinsi sem djúphreinsar húðina. Hann á að fjarlægja öll óhreinindi.
2. Tónerinn
Það er…
Lesa meira HÉR