Réttu upp hönd ef þú hefur fundið fyrir eftirfarandi síðastliðnar vikur; þreytu, uppþembu og ómöguleg í skapinu.
Hljómar þetta kunnuglega?
Ef svo er, þá veistu um hvað málið snýst. Í hverjum mánuði fara hormónarnir af stað, þessi angarsmáu leynivopn fara út að leika og þau gera alls ekki neitt skemmtilegt fyrir þig.
Þú verður pirruð í skapinu, húðin á þér fer öll í uppnám og þér finnst flest allt vera neikvætt og leiðinlegt.
Oftast nær þá jafnar þetta ástand sig eftir blæðingar, en t.d stress og kvíði getur verið viðvarandi og hormónarnir kunna ekki við það ástand.
Hvernig á að vita hvort ástandið sé það alvarlegt að þú þurfir að leita læknis ?
Þreyta
Ofþreyta er, já mest þreytandi ástand. Þú getur verið þreytt eftir langa prófatörn eða ef þú hefur verið að fara að sofa allt of seint og það er ósköp eðlilegt. En ef þú ert stöðugt þreytt og jafnvel algjörlega uppgefin og kannski tekur eftir þyngdaraukningu, matarlystin er í vitleysu og hægðir alls ekki reglulegar, þá er möguleiki á að skjaldkirtillinn sé ekki í lagi. Þetta verður að láta lækni athuga.
Breytingar á húð
Þú tekur eftir bólum í andliti í tíma og ótíma. Þó kannski sumar af þessum bólum birtist vegna þess að þú varst ekki nógu dugleg að hreinsa af þér förðun fyrir svefninn þá geta ástæðurnar einnig verið aðrar.
Fullorðinsbólur sem birtast á neðri hluta andlits geta verið út af háu magni af testósteróni í líkamanum. Þetta er ekki lífshættulegt ástand en þetta er bagalegt ástand. Til eru krem og annað sem læknirinn þinn getur látið þig hafa svo þetta sé ekki viðvarandi.
Óvenjulega hárvöxtur
Við erum að tala um óvenjulegan hraðan hárvöxt hér. Hár sem fer að birtast í andliti eins og skegg, hár sem byrjar að myndast þykkt á handleggjum og baki sem dæmi, getur verið merki um…
Lesa meira HÉR