Það er nú eiginlega alveg með ólíkindum hvað hár og förðun geta gert.
En með réttu klippingunni og hárgreiðslunni má gera ótrúlegar breytingar. Og svo setur förðunin punktinn yfir i-ið.
Breytingar fyrir fimmtugs afmælið
Við urðum bara að deila með ykkur þessu myndbandi af henni Diane, en hún vildi gera breytingar á útlitinu fyrir fimmtugs afmælið sitt.
Diane hafði ekki klippt hár sitt í tuttugu ár enda náði það niður fyrir rass og var auðvitað úr sér vaxið og hálf tætt. Hún hafði fengið ýmis uppnefni í gegnum árin vegna hársins og auk þess var hárið oft til vandræða vegna síddarinnar.
En breytingin er alveg hreint stórkostleg!