Í Japan er sagt „Shinrin-yoku“ sem þýðir á ensku „forest bathing“ – en það er sagt um gönguferðir út í náttúrunni til að slaka á og losa sig við stress.
Aristotle var með sínar kennslustofur úti við og gekk ávallt um á meðan hann kenndi. Það að fara út að ganga er sennilega vanmetnasta hreyfingin. Það kostar ekkert, eflir orkuna, styrkir hjartað og svo margt fleira.
Hér eru 5 ástæður þess að þú ættir að fara út að ganga
Það er hægt að fara út að ganga allstaðar
Hvort sem að þú ert heima eða á ferðalagi að þá er hægt að fara út að ganga, rannsaka hverfið og kynnast þínu nánasta umhverfi gangandi. Það hreinsar hugann, kemur þér út úr húsinu, kemur þér á hreyfingu og af því að göngur eru tiltölulega einföld hreyfing að þá er ekki mikil hætta að meiðslum.
Þú færð endorfín og eykur serotonin
Að plana göngufund með yfirmanni eða viðskiptavin kemur ykkur ekki aðeins út af vinnustaðnum, heldur fær ykkur á hreyfingu og það á vinnutíma. Og það sem meira er að þessi hreyfing losar um endorfín og serotonin í líkamanum sem að virkar eins og náttúruleg víma og gerir það að verkum að þú átt auðveldara með að biðja um launahækkunina t.d eða semja við stóran viðskiptavin.
Hafðu Ipodinn með
Ætlarðu að ganga ein/n? Ertu með eitthvað sem að þú átt eftir að hlusta á sem að gæti jafnvel verið vinnutengt? Ef svo er, skaltu hlaða því niður á Ipodinn. Annars er líka afar gott að hlusta á góða tónlist þegar farið er í göngutúr.
Þú hittir fólk
Ef að þig hefur alltaf langað til þess að taka þátt í maraþoni að þá er tilvalið að fá vin eða vinkonu með sér og æfa saman. Einnig er hægt að skrá sig í göngugrúppur.
Það er svo gott fyrir þig að ganga
Ekki kaupa bullið sem að sagt er um göngur. Þær gera ekkert fyrir þig því þú svitnar ekki nóg eða reynir ekki nógu mikið á þig. Rannsóknir sýna að reglulegir rösklegir göngutúrar hafa afar góð áhrif á blóðþrýstinginn, koma þér í gott skap og lækka kólestrólið.
Svona færðu sem mest út úr þínum gönguferðum
Vertu viss um að vera í réttum skóm
Margir hreyfa sig ekki því að þá verkjar í fæturna – þetta er einmitt ástæðan fyrir því að fá sér þægilega skó. Vertu viss um að skórnir þínir andi vel og styði vel við fótinn.
Prufaðu að ganga með hléum
Ef þú getur ekki gengið í 30 mínútur í senn, skiptu því upp. Gakktu í hádeginu, taktu stigann í stað lyftunnar þegar…
Lesa meira HÉR