Við höldum ekki vatni yfir nýja asíska staðnum í Garðabæ – en þetta er klárlega besti asíski staðurinn í dag.
Staðurinn, sem heitir Nü Asian Fusion, býður upp á hollan og næringarríkan mat og er mikill metnaður lagur í matreiðsluna. Aðalsmerki staðarins er ferskt hráefni og eins og nafn hans gefur til kynna er matseðillinn undir japönskum fusion áhrifum.
Mikið var í lagt til að gera staðinn sem glæsilegastan en þó um leið látlausan. Hönnun og andrúmsloft er notalegt og þjónustan til fyrirmyndar.
Frábær staður og gómsætur matur
Við mælum hundrað prósent með Nü Asian Fusion og erum nú þegar orðin fastagestir.
Þar sem við erum svo ánægð með þennan nýja stað langar okkur til að bjóða einum heppnum í veislu á Nü Asian Fusion – boðið gildir fyrir tvo í forrétt, aðalrétt og eftirrétt. Vinningshafinn fær sem sagt að bjóða einum með sér. Það verður enginn svikinn af veislu á Nü Asian Fusion, þar sem hráefnið er bæði nýtt og ferskt og kokkarnir snillingar í að töfra fram gómsæta rétti úr því.
Sjáðu HÉR gagnrýni okkar og umfjöllun um staðinn.
Gjafaleikur
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
1. Vera viss um að þú sért búin að líka við Facebooksíðu Kokteils HÉR
2. Smella á LIKE/LÍKA við leikinn og „tagga“ þann sem þú vilt bjóða með þér.
3. Deila leiknum á vegginn þinn – og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum einn ljónheppinn út þriðjudaginn 27. febrúar – svo það borgar sig að fylgjast með.