Vörurnar frá Blue Lagoon eru í miklu uppáhaldi hér hjá okkur á Kokteil. Þær eru ekki bara ótrúlega góðar heldur eru þær líka Parabena fríar og ofnæmisprófaðar sem gerir þær einstaklega góðar fyrir allar konur sem eru í hormónarugli, t.d. konur á breytingaskeiði.
Fjölbreytt vörulína
Það er ekkert leyndarmál að til að húð okkar sé í góðu ástandi er mikilvægt að næra hana rétt og það er einmitt það sem þessar vörur gera. Annar kostur er að þær eru nær lyktarlausar og því trufla þær ekki lyktina af því ilmvatni sem maður kýs að nota.
Úrvalið af vörum fyrir bæði andlit og líkama hefur aukist með hverju árinu og það er stöðugt eitthvað nýtt og spennandi að koma á markaðinn frá þeim.
Þetta er í þessum flotta pakka sem við ætlum að gefa í samstarfi við Blue Lagoon
REJUVENATING DAY CREAM
Nærandi og rakagefandi krem til daglegra nota sem inniheldur náttúrulega Blue Lagoon bl_m5 efnasamsetningu og Blue Lagoon jarðsjó. Ný formúla með SPF 15 sem örvar náttúrulegt varnarkerfi húðarinnar og verndar hana gegn óæskilegum áhrifum umhverfisins.
Kremið dregur úr fínum línum og hrukkum og veitir fallegt yfirbragð og útgeislun.
MINERAL BIPHASIC TONER
Tvíþætt andlitsvatn sem veitir raka og verndar húðina. Inniheldur Blue Lagoon jarðsjó, steinefni, kísil og þörunga. Styrkir varnarkerfi húðarinnar og veitir slétt og fallegt yfirbragð.
Vatnið skal nota daglega kvölds og morgna eftir hreinsun eða hvenær sem hressa þarf upp á húðina. Sérlega gott fyrir þurra og viðkvæma húð.
GIFTS OF NATURE
Hér er um að ræða skemmtilegar pakkningar með andlitsmöskum og kornaskrúbbi. Þetta kemur í fallegum öskjum og er þeim raðað í öskjurnar eins og konfektmolum. Ótrúlega skemmtilegt og smart. Hver pakkning dugar fyrir eitt skipti og er frábært að setja pakkninguna í frystinn og bera maskann eða skrúbbinn svo beint á andlitið.
Hver pakki inniheldur 3 tegundir af maska og við gefum 2 svona pakka.
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessum pósti síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum Blue Lagoon pakkann út föstudaginn 15. apríl.
Það er til mikils að vinna því heildarverðmæti pakkans er 26.200 krónur.
Vertu með í pottinum!