Áfram heldur 1 árs afmælisveislan okkar og nú er komið að þessum frábæru vörum. En við ætlum að gefa einum heppnum lesanda þennan glæsilega pakka.
Æðislegur nýr 007 dömuilmur
Nýlega kom á markaðinn ilmur fyrir konur úr 007 línunni en herrailmur hefur lengi verið fáanlegur. Dömuilmurinn er auðvitað ómótstæðilegur eins og sönnum Bond-skvísum sæmir. Og á að endurspegla hið hættulega og tælandi eðli Bond-kvenna. Ilmurinn er innblásinn af hinum dularfulla ilmi sem einkenndi austurlenskar konur hér áður fyrr – blóm, krydd og hlýr austurlenskur blær.
Við gefum einum heppnum bæði ilmvatnið og auðvitað húðkremið með. En verðmæti varanna er um 9.300 krónur.
Þéttari, lengri og fallegri augnhár með BeautyLash Eyelash Growth Booster
Hver vill ekki þétt, löng og falleg augnhár? Hér er ný vara sem hjálpar þér að öðlast þessi fallegu augnhár.
BeautyLash Eyelash Growth Booster er nýjung á Íslandi. Um er að ræða serum fyrir augnhárin og felst leyndarmálið á bak við virkni þess í Plexaura Homomalla sem er kórall í Karíbahafinu. En efni úr kóralinum örvar hárrót augnháranna og eykur vöxt þeirra og algjörlega á náttúrulegan hátt. Vaxtartímabil augnhárann lengist og fjöldi augnhára eykst.
Þvílík snilld!
Árangur kemur fljótlega í ljós en eftir 6 til 8 vikur eru augnhárin orðin mun lengri, þykkari og sterkari.
Við gefum einum heppnum þessa frábæru vöru með ilmvatninu en verðmæti hennar er 12.300. Heildarpakkinn er því 21.600 krónur.
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessum pósti síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum einn heppinn út fimmtudaginn 10. mars
Vertu með í afmælisveislu Kokteils!