Við erum komin í þvílíkt afmælisskap enda verðum við 1 árs þann 5. mars. Og eins og alltaf er á afmælum þá verða gefnar gjafir. Afmælisbarnið KOKTEILL er svo þakklátt fyrir frábærar móttökur þetta ár sem það hefur verið í loftinu að það ætlar að gleðja nokkra lesendur sína með góðum gjöfum.
Við ætlum sem sagt að gefa YKKUR afmælisgjafir
Við byrjum hér á skemmtilegum gjafaleik með HREYFINGU – en þar er að fara af stað nýtt námskeið sem er snilld fyrir þá sem vilja hrista af sér vetrarslenið og koma hreyfingu inn í rútínuna. Stundum er bara svo erfitt að koma sér í gang og þá er gott að fá smá spark í rassinn til að drífa sig af stað. Og hér er tækifærið!
Um er að ræða þriggja vikna stutt og stíft námskeið til að koma líkamsræktinni inn í daglega rútínu. Hljómar ekki vel að endurnýja orkuna og koma líkamanum í form?
Einn heppin/n verður dreginn út og fær eitt pláss á þetta frábæra námskeið sem hefst þann 1. mars.
Í námskeiðinu er þetta innifalið:
Þjálfun þrisvar sinnum í viku.
Fjölbreytt æfingakerfi: Sportþjálfun, eftirbruni, buttlift, lyftingar, hjól o.fl.
Upplýsingar um mataræði sem bætir líðan þína og útlit.
Æfingaáætlun fyrir tækjasal sem miðar af því að auka grunnbrennslu.
Hvetjandi og fræðandi tölvupóstar þrisvar sinnum í viku.
Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum.
Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum.
HÉR má lesa meira um námskeiðið og skrá sig.
En það er MEIRA
Við ætlum nefnilega líka að gefa einum heppnum mánaðarkort í Hreyfingu sem gildir í heilsuræktina og úti aðstöðuna.
Það verða sem sagt tveir heppnir dregnir út sem geta skellt sér í ræktina.
Vertu með í afmælisveislunni og þú gætir nælt þér í gjafir frá Hreyfingu.
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessu síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum námskeiðið út sunnudaginn 29. febrúar og líkamsræktarkortið mánudaginn 7. mars.