Það er alltaf gaman að bjóða upp á fallega köku eða böku í eftirrétt, nú eða bara með sunnudagskaffinu.
Þessi fallega baka er bæði sæt og fersk og hentar því vel eftir máltíð. Svo er líka svo hentugt þegar maður getur undibúið svona fyrirfram.
Ferskt bragð
Það er bismark brjóstsykurinn og piparmyntan í bökunni sem gefur henni þetta ferska bragð. Alveg hrein dásemd! Og svo er hún líka smá jólaleg en það styttist einmitt í þau.
Uppskriftina fengum við hjá henni Svövu vinkonu okkar á Ljúfmeti og lekkerheit.
Frosin bismarkbaka með sykurpúðakremi
Botn
- 20 súkkulaðikexkökur, t.d. Maryland með súkkulaðibitum
- 2 msk kakó
- 25 g brætt smjör
Bismarkkrem
- 5 dl rjómi
- 1 dós sykurpúðakrem (marshmallow-krem, fæst t.d. í Hagkaup)
- nokkrir dropar af piparmintudropum
- nokkrir dropar af rauðum matarlit
- 1 dl bismarkbrjóstsykur, og nokkrir til skrauts
Súkkulaðisósa
- 125 g dökkt súkkulaði
- 75 g smjör
- ½ dl sykur
- ½ dl sýróp
- ½ dl vatn
- smá salt
Aðferð
Setjið kex, kakó og brætt smjör í matvinnsluvél og blandið vel saman.
Þrýstið blöndunni í smelluform með lausum botni (það getur verið gott að klæða það fyrst með smjörpappír) og setjið í frysti.
Þeytið rjómann og blandið sykurpúðakreminu varlega saman við. Passið að hræra kreminu ekki of vel saman við rjómann, það á að vera í litlum klessum í rjómanum.
Hrærið nokkrum dropum af piparmintudropum saman við (smakkið til, mér þykir hæfilegt að nota ca 1 tsk.). Setjið um þriðjung af kreminu í aðra skál og leggið til hliðar.
Myljið bismarkbrjóstsykurinn í mortéli og blandið honum saman við stærri hluta kremsins.
Takið kökubotninn úr frystinum og dreifið kreminu með bismarkbrjóstsykrinum yfir botninn.
Hrærið nokkrum dropum af rauðum matarlit saman við kremið sem var lagt til hliðar og dreifið því yfir hvíta bismarkkremið. Notið hníf til að mynda óreglulega áferð í kremið.
Frystið kökuna í að minnsta kosti 5 klukkutíma.
Takið hana úr frystinum 10-15 mínútum áður en það á að bera hana fram. Skreytið með bismarkbrjóstsykri.
Sósan
Setjið öll hráefnin í súkkulaðisósuna í pott.
Látið suðuna koma upp við vægan hita og hrærið þar til súkkulaðið er bráðið. Látið sjóða við vægan hita í 10 mínútur eða þar til sósan er orðin þykk og glansandi.
Berið sósuna með kökunni fram heita eða kalda.