Þetta dásamlega myndband minnir okkur á hvað það er sem er mikilvægast í þessu lífi. En það er fólkið okkar – fjölskyldan og góðir vinir.
Þegar brúðurin Kaley heyrði rödd látins föður síns á brúðkaupsdeginum leið næstum yfir hana. Tilfinningarnar báru hana ofurliði. En faðir hennar lést óvænt árið 2015.
Kaley, sem er yngst sex systkina, var einstaklega náin föður sínum. Hún á fimm eldri bræður.
Bræðurnir fimm komu henni heldur betur á óvart í brúðkaupsveislunni. En þeir fundu leið til þess að hafa látinn föður sinn með í veislunni.
Þeir tóku lagið Fathers and Daughters með Michael Bolton og bættu brotum, úr fjölskyldumyndböndum, af rödd föður þeirra inn í lagið. Síðan dönsuðu þeir allir við Kaley.
Þetta var auðvitað hið fullkomna lag fyrir Kaley sem gat ekki haldið aftur af tilfinningum sínum.
Svo fallegt.
Söngvarinn Michael Bolton var svo hrifinn þegar hann sá þetta myndband að hann deildi því sjálfur á samfélagsmiðlum.