Þetta myndband er gleðisprengja dagsins!
Scarlet litla er 11 mánaða gömul stúlka sem fæddist þremur mánuðum fyrir tímann og því fylgdu ýmis vandamál eins og til dæmis það að Scarlet missti heyrn vegna lyfja sem hún fékk.
En 11 mánuðum eftir fæðinguna fékk hún heyrnartæki sem breyta öllu fyrir hana – og viðbrögðin þegar hún heyrir loksins í stóru systur sinni eru dásamleg.
Þú vilt hafa hljóðstyrkinn stilltan hátt á meðan þú horfir á þetta… og við værum ekki hissa þótt þú vildir horfa aftur.
Dásamlegt!