Þessi unga kona kennir okkur að gera það besta úr því sem maður hefur og er sannkölluð fyrirmynd.
Fæddist án fótleggja
Hún heitir Kanya, er 24 ára gömul og fæddist án fótleggja. Aðeins nokkrum vikum eftir að hún fæddist í Taílandi var hún skilin eftir fyrir utan musteri þar í landi. En hún var lánsöm því fimm ára gömul var Kanya ættleidd af amerískri fjölskyldu.
Lætur ekkert stoppa sig
Og líf hennar hefur heldur betur breyst því þessi unga kona lætur ekkert stoppa sig og eyðir tíma sínum mestmegnis á hjólabretti. Þá ferðast hún um á brettinu í stað þess að vera í hjólastól. Einkunnarorð hennar eru „engir fætur – engin takmörk“. Hún notar meira að segja hendurnar til að hlaupa á hlaupabretti.
„Ég er öðruvísi og það er kynþokkafullt“ segir þessi kröftuga unga kona sem byrjaði 15 ára gömul að vinna sem fyrirsæta og gerir það gott í dag sem undirfatafyrirsæta. Það er alveg á hreinu að það má læra eitt og annað af henni varðandi sjálfstraust og sjálfsgagnrýni.
Sjáðu þessa sterku konu hér í myndbandinu