Við eyðum drjúgum tíma af lífi okkar í rúminu og því ekkert skrýtið að rúmdýnan verði óhrein.
Hér er frábært ráð til að lífga upp á dýnuna og hreinsa hana svo hún ilmi vel og verði hrein og fín.
Og auðvitað er þessi aðferð bæði náttúruleg og einföld – alveg eins og við viljum hafa það!
Það sem þú þarft
450 gr matarsóda
ilmkjarnaolíu (með ilm að eigin vali)
ryksugu
Og svona gerirðu þetta
Byrjaðu á því að snúa dýnunni við. En það er ágætt að hafa það sem reglu að snúa rúmdýnunni við á hálfs árs fresti – bæði vegna hreinlætis og líftíma hennar.
Settu matarsódann í lokað box og bættu tíu til tuttugu dropum af ilmkjarnaolíu út í hann. Hristu þetta vel saman.
Taktu síðan blönduna og dreifðu henni allri yfir dýnuna. Notaðu hendurnar til að nudda þessu í hana og gættu þess að nudda vel ofan í dýnuna.
Láttu þetta svo liggja á dýnunni, og gera sitt, í að minnsta kosti klukkutíma.
Að þeim tíma liðnum er dýnan ryksuguð vel. Best er að vinna þetta skipulega og taka t.d. eina rönd í einu til að ná blöndunni vel upp.
Svo er bara njóta þess að sofa á hreinni og vel lyktandi dýnu.