Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í brúðkaupi dóttur sinnar og gerði þetta í staðinn.
Nicole starfar sem táknmálstúlkur og það sem pabbi hennar gerði fyrir hana á þessum degi er alveg ótrúlega fallegt. Hann söng fyrir dóttur sína og tengdason á táknmáli.
Þetta gerði hann til að sýna henni hversu vænt honum þykir um hana og hvað hún skiptir hann miklu máli.
Það tók hann heilt ár að undirbúa sig og læra táknin til að geta sungið lagið. Og eins og nærri má geta voru vasaklútar á lofti enda ekki eitt einasta þurrt auga í salnum.