Með aldrinum missum við fyllingu í andlitinu sem leiðir til þess að allt sígur niður. Augun virðast sokkin, kinnarnar lafandi og kinnbeinin hvassari. Húðin er ekki lengur stinn og teygjanleg.
Fitan hjálpar
Of lágur þyngdarstuðull getur síðan ýkt ástandið þar sem fitan er það sem hjálpar til við að slétta úr fínum línum og hrukkum. Fitan í undirhúðinni gefur húðinni fyllingu en þegar hún fer að minnka sígur húðþekjan og hrukkur myndast.
Hvort sem konur eru of grannar, í kjörþyngd eða of þykkar þá fáum við allar einhverjar hrukkur á endanum.
Krumma- eða krákufætur
Það er svo sem enginn ákveðinn hrukkualdur til. Sumar konur eru á þrítugsaldri þegar þær sjá fyrstu hrukkurnar í andlitinu á meðan aðrar eru jafnvel komnar á sextugsaldurinn. Þær sem fá hrukkur seint á ævinni hafa yfirleitt hugsað vel um húðina í gegnum árin og eru auk þess með góð gen. Þá er ekki ólíklegt að þær myndi meiri húðfitu en gerist og gengur.
Fyrstu hrukkurnar myndast yfirleitt í kringum augun en þar fáum við svo kallaða krummafætur eða krákufætur – líka kallaðar hláturshrukkur. Þessar hrukkur myndast fyrr ef þú pírir mikið augun, til dæmis í sól eða ef þú reykir. Næsti staður sem hrukkurnar ráðast á er svæðið í kringum munninn en þar myndast broshrukkur.
Það er kannski hálf fúlt að vita til þess að ef maður brosir mikið þá líði maður fyrir það með hrukkum. En það verður bara að hafa það – betra að vera hress og hrukkótt en fúl og slétt!
Að þekkja varla sjálfa sig í speglinum
Á ákveðnum aldri finnst mörgum konum þær ekki þekkja sjálfar sig þegar þær líta í spegilinn – sérstaklega á morgnana. Þessi kona sem horfir tilbaka virðist eitthvað svo þreytuleg með þetta slappa andlit. Munnsvipurinn hangir eins og hún sé í fýlu og hún er með poka undir augunum.
En það er um að gera að bjóða þessa nýju konu velkomna og fagna því að fá að eldast. Á þessum aldri er einmitt rétti tíminn til að taka aðeins til hjá sjálfum sér. Nú gengur ekki lengur að nota sömu gömlu kremin eða sömu förðunarvörur og þegar þú varst tvítug. Það er því kjörið að líta á þetta sem kærkomið tækifæri til að fá sér nýjar vörur.
Veldu síðan þann hluta andlitsins sem þú ert ánægðust með og gerðu sem mest úr honum. Það geta til dæmis verið augun eða varirnar. Ekki er heldur verra að fá aðstoð fagmanneskju til að læra að draga fram það besta í andliti þínu.