Ef þér finnst þú finna óþægilega mikið fyrir skammdeginu núna þá er sólarleysi og minni dagsbirta ekki endilega aðal ástæðan.
Þegar kólnar í veðri og dagsbirtan verður minni með hverjum degi er afar auðvelt að kenna því um að okkur líður ekki vel og að skapið verður þyngra.
En það eru líka aðrar ástæður fyrir þessari líðan. Þannig að áður en þú dregur fram þunglyndislyfin lestu þá þetta.
Hreyfir þú þig nóg?
Þegar kalt er í veðri er svo auðvelt að skríða upp í sófa með teppi og kúra bara inni og trassa það að fara í ræktina. En eins og allir eiga að vita þá léttir regluleg hreyfing skapið og kemur blóðinu af stað. Þú þarft ekkert endilega að halda sömu dagsskrá í ræktinni og yfir sumartímann en nokkrir dagar í viku gera gæfumuninn. Svo er líka afar hressandi að taka göngutúr í hverfinu þó það sé kalt. Fyrir vikið færðu rauðar kinnar og fyllir líkamann af súrefni.
Við sem búum á landi eins og Íslandi eigum að notfæra okkur snjóinn þegar hann kemur, fara á skíði og skauta til að hrista aðeins upp í okkar venjulegu æfingar rútínu.
Ertu með áhyggjur af peningum?
Jólin nálgast óðfluga og þeim fylgja oft peninga áhyggjur. Þú ferð yfir á kreditkortinu og launin hverfa út af bankareikningnum. Áður en þú ferð að hlaða á þig reikningum, spáðu þá í því hvort rándýrar gjafir séu virkilega nauðsynlegar! Ekki grafa þig niður í skuldir bara þó svo jólin séu að koma.
Eru skuldbindingar að mæta í fjölskylduboðin að fara með þig?
Jólin er nú hátíð fjölskyldunnar. Allir koma saman í boðum og borða góðan mat. En það getur stundum verið „drama“ í svona boðum. Og veistu, þú ræður alveg sjálf hvort þú farir í þessi boð eða ekki. Ef þau vekja hjá þér kvíða og stress ættir þú kannski að sleppa einhverjum af þeim og velja bara þín uppáhalds.
Ertu að borða rétt?
Að raða í sig fitandi hátíðarmat sem þú ert ekki vön/vanur að borða nema einu sinni á ári er ekki hollt. Þú ert jafnvel að sleppa því sem þú ert vön/vanur að borða, eins og góðum morgunverði og öllu grænmetinu og hollustunni sem þú hefur sett á þinn persónulega matseðil yfir árið. Þessi þungi hátíðarmatur gefur líkamanum enga orku, heldur er hann orkuþjófur.
Góð regla er að ef þú ert að fara í matarboð að kvöldi til að borða þá bara ávexti, grænmeti og léttar máltíðir yfir daginn. Andoxunarefnin, trefjarnar og próteinið mun fylla líkamann af orku og hjálpa þér að halda sönsum eftir þunga hátíðarmáltíð.
Finnst þér þú vera útundan í fjölskylduboðum?
Á meðan sumir…
Lesa meira HÉR