Líkaminn er þitt musteri og þér ber að fara vel með hann því þú færð ekki annan ef þú misnotar þennan sem þú fæddist í.
Oft á tíðum þá er líkaminn að reyna að segja okkur að eitthvað sé að en oftar en ekki hlustum við ekki á hann.
Líkaminn lætur vita
Sem dæmi, þú byrjar að finna fyrir verkjum og þér finnst þú vera heit/ur og afar þreytt/ur, þú heldur að það sé gott að leggja sig í smá stund, en í raunveruleikanum þá er líkaminn að segja þér að þú sért að fá kvef.
Málið er að þessar viðvaranir eru oft ekki nógu skýrar og oft erfitt að komast til botns í málinu og hvað orsakar verki, þreytu og hita tilfinningu.
Hér fyrir neðan eru nokkur algengustu einkennin sem við skiljum ekki alveg eða þá hvað líkaminn er að reyna að segja okkur.
Krampar í fótleggjum
Að vakna upp á nóttunni með krampa í öðrum fótleggnum eða þá báðum er afar sársaukafullt. Aðal orsökin fyrir þessu er að leggirnir fá ekki nóg blóðflæði, en það er vegna þrenglsa í æðum.
Önnur ástæða getur verið vegna of mikillar pressu á hrygginn, en þetta er gerir oft vart við sig eftir langar göngur.
Til þess að koma í veg fyrir þessa krampa þá þarftu að borða meira af mat sem er ríkur af kalíum, mat eins og tómata, appelsínur og banana. Einnig er gott að drekka nóg af vatni yfir daginn.
Löngun í mat – ákveðinn mat
Þetta er eitthvað sem allir þekkja. Að langa allt í einu í eitthvað ákveðið, eins og t.d súkkulaði eða saltaðar kartöfluflögur. Oft kemur þessi löngun yfir okkur vegna þess að líkamann skortir ákveðin næringarefni.
Til þess að losna við þessa löngun í ákveðinn mat skaltu hætta að kaupa unna matvöru, saltaðar flögur og passa upp á að fá nægan svefn. Of lítill svefn getur leitt til þess að þú verður stressuð/aður sem svo aftur kveikir í löngun í sætindi og saltaðan mat.
Þurr húð
Það kemur þér eflaust á óvart hversu margir sætta sig við þurra húð. Þurr húð er ekki að hræða neinn, svo oft er þetta vandamál hundsað. En það þarf að spá í þetta. Sumir finna fyrir þurri húð þegar veturinn gengur í garð en svo aðrir á sumrin. Einnig geta sápur og þvottaefni þurrkað upp húðina.
Lausnin við þessu er að borða meira af góðri fitu. Má nefna avókadó, feitan fisk, hnetur og fræ.
Höfuðverkur
Milljónir manns um allan heim finna fyrir höfuðverk daglega. Hann getur verið vegna kvefs, sýkingar eða hita. Einnig getur höfuðverkur komið vegna of mikils stress, þunglyndis, svefnleysis, vöðvabólgu og ef þú ert að taka mikið af lyfjum og passar ekki upp á að borða á réttum tíma.
Gott er að borða mat sem er ríkur af magnesíum til að koma í veg fyrir daglegan höfuðverk.
Brothættar neglur
Neglur verða brothættar þegar við eldumst. Fyrir konur þá getur þetta verið merki um annað. Má t.d. nefna að of mikil notkun á naglalakki, hormónaójafnvægi, þunglyndi og lélegt mataræði.
Besta lausnin er að fara til læknis og láta mæla hvaða næringarefni þig skortir.
Klofnir hárendar
Þegar endar á hárinu eru klofnir þá tekur þú ekkert endilega eftir því. En við erum ekki að spá í útlitið hér, heldur hvað þýða klofnir endar?
Hárþurrkur og sléttujárn þurrka hárið mikið og geta þess vegna orsakað klofna enda. Einnig ef þú notar mikið af kemískum vörum í hárið þitt þá máttu búast við því að endar klofni.
En það sem skiptir mestu máli er mataræðið, þig skortir holla fitu, eins og fitu úr fisk, avókadó og ólífuolíu í mataræðið. Og góð leið við klofnum endum er að nota lífrænan hárlit og leyfa hárinu að þorna án hárþurrku.
Andfýla
Öll höfum við lent í því að tala við einhvern sem er afar andfúl/l. Í flestum tilvikum má kenna mataræðinu um.
Matur sem er fastur milli tanna er farinn að rotna og þá kemur þessi sterka andfýla. Einnig getur munnþurrkur verið ástæðan, án munnvatns þá er ekkert í munninum sem getur fjarlægt þessar matarleyfar.
Alvarlegustu tilvikin eru sýkingar í góm og skemmdar tennur. Besta leiðin…
Lesa meira HÉR