Elizabeth Taylor var með glæsilegri og fallegri konum.
Hún var líka ávallt vel til höfð og með förðunina á sínum stað – og glæsileiki hennar var óumdeilanlegur.
Klassísk augnförðun
Leikkonan var dulúð og hennar persónulega líf var hennar líf en ekki almennings og aðdáenda. Enda var hún uppi á þeim tíma þar sem næði frá athyglinni var mikils metið og hið dulúðlega þótti eftirsóknarvert.
Í þessu myndbroti hér að neðan sést hvað Elizabeth hefur algjörlega verið með þetta. Hér hendir hún í klassíska augnförðun á skömmum tíma og það virðist svo einfalt. Myndbrotið er úr myndinni The Driver’s Seat.
Þessi augnförðun á við enn þann dag í dag og vel hægt að taka Elizabeth sér til fyrirmyndar þar sem hún dregur línur og blandar öllu saman með einum litlum bursta og útkoman verður klassísk. En leikkonan sá gjarnan sjálf um förðun sína í þeim myndum sem hún lék í.
Klassík!