Nýrnasjúkdómar eru því miður of algengir.
Kenna má eiturefnum sem við öndum að okkur daglega um þetta ástand, en við gerum okkur ekki grein fyrir því hvað getur leynst í andrúmsloftinu.
Þegar nýrun eru farin að vinna illa þá verður heilsan léleg
Gott er að þekkja merki þess að nýrun séu ekki í fullkomnu lagi og einnig er gott að vita hvað má gera til þess að bæta virkni þeirra.
Verkur í neðri hluta í baki
Eitt fyrsta merki þess að nýrun eru ekki eins virk og þau ættu að vera er verkur í neðri hluta í baki.
Stundum getur þessi verkur verið öðru megin, sem gerist þá ef viðkomandi sefur ávallt á sömu hlið og er það þá nýrað á þeirri hlið sem á í vandræðum vegna þyngdarlögmálsins. En í flestum tilvikum eftir að verkur hefur byrjað öðru megin í baki þá mun hann einnig fara að gera vart við sig hinum megin neðarlega á bakinu.
Sem dæmi, þú munt vakna upp á morgnana eða jafnvel um miðja nótt og ert með bakverk, ýmist öðru megin eða yfir allan neðri hluta baksins. Þegar þetta gerist þarft þú yfirleitt að pissa og eftir klósettferðina þá léttir á þessum verk.
En þetta er viðvörun um að eitthvað sé í ólagi með nýrun þín og er best að leita læknis til að fá úr því skorið hvað sé í gangi.
Útbrot, kláði og þurr húð
Nýrun vinna við að fjarlægja úrgang úr blóðinu, þannig að þegar þau hætta að virka sem skyldi þá hleðst þessi úrgangur upp í blóði og getur orsakað útbrot, mikinn kláða og afar þurra húð.
Þetta er merki um að nýrun séu í vandræðum og verður að taka mjög alvarlega. Ekki láta freistast til að fara að bera á þig feitt krem því það gerir ekkert gagn. Leitaðu læknis.
Breytingar á þvagláti
Þar sem nýrun framleiða þvag þá breytist mynstur þvagláts ef þau eru ekki í lagi.
Má nefna eftirfarandi:
- Þvag getur verið froðukennt eða með loftbólum.
- Þú vaknar oftar á nóttunni til að pissa.
- Þú pissar meira magni en vanalega og er þvagið afar ljósgult.
- Þú pissar sjaldnar og lítið í einu en þvag er afar dökkgult.
- Þú getur fundið fyrir þrýstingi og átt erfitt með að pissa.
- Það getur verið blóð í þvaginu.
Þessar breytingar á þvagláti eru merki um nýrnavandamál en þegar þvag er farið að breyta um lit þá eru það merki um alvarleg nýrnavandamál.
Bólgur í líkama
Nýrun hreinsa óþverra og uppsafnaðan vökva úr líkamanum, þannig að þegar þau hætta að virka eðlilega þá byggist þessi vökvi upp. Þetta getur orsakað bólgur í andliti, höndum, fótleggjum, ökklum og…
Lesa meira HÉR