Ekki vilja allir kaupa efni út úr búð til að þrífa heima hjá sér. Sérstaklega getur baðkarið verið viðkvæmt svæði þar sem fólk liggur og baðar sig og getur því auðveldlega komist í snertingu við þessi efni.
Þannig geturðu þrifið baðkarið á öruggan hátt
Matarsódi getur verið til margra hluta nytsamlegur og meðal annars til þrifa.
Hér er einföld og óskaðleg blanda til að þrífa baðkarið þitt.
Blandaðu þessu saman
1 bolli matarsódi
1 tsk. af fljótandi sápu
Nokkra dropa af bakteríudrepandi olíu, eins og t.d. tea tree, rósmarín, piparmyntu eða eucalyptus.
Bættu við vatni þannig að þetta verði eins og hálfgert mauk eða mjög þykkt krem. Notaðu síðan svamp eða bursta til að skrúbba og þrífa baðkarið með blöndunni.
Og á eftir geta allir baðað sig án þess að hafa áhyggjur af sterkum efnum.