Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa þeim sem við kölluðum spariskyr.
Um daginn gerði ég nýja útfærslu af spariskyri sem vakti ekki minni lukku en sú gamla.
Það eru í raun engin hlutföll í þessu heldur bara gert eftir tilfinningu.
Rjómi er þeyttur og hrærður saman við vanilluskyr þannig að skyrið verði létt í sér. Oreokex er mulið og síðan er skyr og kex sett á víxl í skál eða glas.
Endið á að setja kex yfir og volá!
Það sem þarf
vanilluskyr
rjóma
Oreo kexkökur
Svava – Ljúfmeti og lekkerheit