Súkkulaði, bananar og rjómi er ótrúlega góð blanda og það vita allir þeir sem hafa prófað.
Þessi dásamlega súkkulaði- og bananabaka með rjóma fær þig til að vilja gera hana aftur og aftur – því hún er svo góð.
Uppskriftin að bökunni kemur frá henni Svövu vinkonu okkar á Ljúfmeti og lekkerheit.
Það sem þarf
Botninn
- 1 bolli hveiti
- 115 gr ósaltað kalt smjör
- 1/4 tsk salt
- 1/4 bolli kakó
- 1/4 bolli sykur
- 1/4 bolli vatn
Aðferð
Skerið smjörið í litla teninga og setjið í skál ásamt hveiti, salti, kakói og sykri.
Hnoðið saman í mulning og bætið þá vatninu við í smáum skömmtum. Notið bara eins mikið af vatni og þarf til að deigið haldist saman.
Fletjið deigið út og leggði í bökuform (um 22 cm). Þrýstið deiginu vel í botninn og upp á kantinn og leggið síðan álpappír yfir (þrýstið honum að deiginu).
Setjið deigið í ískápinn í 10 mínútur eða á meðan þið hitið ofninn í 175°.
Til að deigið lyfti sér ekki í ofninum er gott að leggja baunir eða hrísgrjón ofan á álpappírinn. Bakið í 20 mínútur, takið þá álpappírinn af (og baunirnar eða grjónin) og bakið áfram í 10-15 mínútur.
Takið úr ofninum og látið kólna alveg.
Vanillu- og súkkulaðikrem
- 3/4 bolli sykur
- 1/3 bolli hveiti
- 1/4 tsk salt
- 2 bollar nýmjólk
- 3 eggjarauður
- 1 msk ósaltað smjör
- 2 tsk vanillusykur
- 1/4 bolli suðusúkkulaði, saxað
Aðferð
Blandið saman sykri, hveiti, salti og 1 bolla af nýmjólkinni í potti.
Hrærið vel saman og látið suðuna koma upp yfir miðlungs hita. Hrærið stöðugt þar til blandan verður slétt og þykk, það tekur um 2 mínútur, og takið þá pottinn af hitanum og látið kólna aðeins.
Hrærið eggjarauður saman við 1 bolla af nýmjólk í skál.
Bætið þykkri mjólkurblöndunni úr pottinum saman við í 4 skömmtum og hrærið vel á milli.
Setjið blönduna aftur í pottinn og látið suðuna koma aftur upp. Hrærið stöðugt í pottinum. Þegar suðan kemur upp er hitinn lækkaður og látið sjóða í ca 1 mínútur eða þar til blandan minnir á þykkan búðing.
Takið pottinn af hitanum og hrærið strax smjöri og vanillusykri saman við.
Setjið helminginn af blöndunni í skál og leggið til hliðar. Bætið söxuðu suðusúkkulaði saman við þann helming sem eftir er í pottinum og hrærið þar til súkkulaðið er bráðnað og blandan orðin slétt.
Látið báðar fyllingarnar kólna aðeins.
Ofanálag og samsetning
- 2 bananar, skornir í sneiðar
- 1 bolli rjómi
- 3 msk sykur
- 1/2 tsk vanillusykur
Aðferð
Breiðið úr vanillufyllingunni yfir bökubotninn.
Raðið einu lagi af niðurskornum bönunum yfir og breiðið úr súkkulaðifyllingunni yfir bananana.
Setjið í ískáp og leyfið að kólna alveg.
Rétt áður en bakan er borin fram er rjóminn léttþeyttur, sykri og vanillusykri bætt út í og þeytt áfram þar til rjóminn er tilbúinn. Alls ekki þeyta hann of mikið.
Setjið rjómann yfir bökuna og skreytið með dökku súkulaði.
Svo er bara að njóta!