Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur. Enda segist hún oft fá þá spurningu hvert leyndarmálið sé.
Dana hefur leikið í fjölda bíómynda og sjónvarpsþátta og margir muna eflaust eftir henni úr þáttunum um hinar vinsælu Desperate Housewives.
Og þetta er leyndarmálið
Í myndbandinu hér að neðan er viðtal við Dönu þar sem hún er gestur í sjónvarpsþætti Steve Harvey í Bandaríkjunum. En Steve hefur einmitt á orði að hún eldist bara ekki neitt og spyr síðan hvert leyndarmál hennar sé.
Dana svarar því til að hún sé oft spurð að þessu og hún telji sig vera búin að átta sig á því hver ástæðan sé.
Og haldið ykkur fast því það er líklega ekki eins og þið haldið. En ástæðurnar fyrir unglegu útlitinu segir Dana vera þær að hún hafi aldrei verið gift, hún eigi engin börn, hún stundi jóga á hverjum degi og svo drekki hún heilan hellling af léttvíni.
Ætlar aldrei í lýtaaðgerð
Þessi flotta kona verður 66 ára í mars næstkomandi. Og okkur finnst hún líta fáránlega vel út miðað við árafjöldann.
Fyrir þá sem efast þá þýðir ekkert að segja að hún hafi látið krukka í sig því Dana ákvað árið 2003 að prófa Botox í ennið á sér en ekki vildi betur til en svo að nálin lenti á taug svo úr varð mar sem hafði áhrif á vöðvana í hægra auga hennar. Það leiddi til þess að augað hangir aðeins og eftir það hét Dana því að hún færi ALDREI í lýtaaðgerð.