Vissir þú að það er rosalega gott fyrir augun að gera augnæfingar?
Að gera slíkar æfingar reglulega getur hjálpað til við að bæta sjónina og koma í veg fyrir augnsjúkdóma sem gjarnan þróast með hærri aldri. Þá styrkja æfingarnar líka augnvöðvana.
Álag á augun
Í dag vinna margir við tölvu allan daginn og stara stanslaust á skjáinn. Slíkt veldur miklu álagi á augun og því ekkert óeðlilegt að vera alveg búinn í augunum á kvöldin.
Ef þú finnur fyrir þreytu í augunum yfir daginn er mjög sniðugt að gera þessar æfingar svo þú getir haldið áfram að vinna. En skynsamlegast er samt að gera þessar æfingar reglulega til að fyrirbyggja vandamál.
Mælt er með því að gera slíkar augnæfingar daglega.
Sjáðu hér hvernig æfingarnar eru gerðar