Tenórinn Andrea Bocelli hefur glatt marga í gegnum tíðina með fallegum söng sínum.
Nú er væntanleg ný plata frá honum þar sem Andrea syngur nokkra dúetta, þar á meðal með syni sínum sem verður 21 árs nú í október.
Þetta lag og myndband lofar góðu um nýju plötuna sem inniheldur allt ný lög – en heil 14 ár eru síðan Andrea gaf út plötu með nýjum lögum.