Löngun í salt lætur á sér kræla ef þú ert vön/vanur að borða mikið af söltum mat en ert að reyna að minnka við þig neyslu á salti.
Einnig getur löngun í salt stafað af undirliggjandi sjúkdómum sem sumir geta verið alvarlegri en aðrir.
Hér eru nokkrar ástæður fyrir því af hverju líkaminn kallar á salt
Líkaminn þarf salt
Líkaminn er rúmlega 60% vatn. Salt er eitt þeirra efna sem hjálpa líkamanum að viðhalda réttu jafnvægi á vökva.
Þú þarft um eina teskeið af salti á dag til að viðhalda heilbrigðu magni salts í líkamanum. Mest af þessu salti færð þú með því að borða mat sem er saltaður. En að borða of mikið af salti getur leitt til þess að blóðþrýstingur verður of hár.
Algengar ástæður fyrir löngun í salt
Þú finnur fyrir löngun í salt þegar þú ert að reyna að minnka saltaðan mat í mataræði þínu heilsunnar vegna. En þetta stafar af því að líkami þinn er vanur að fá sinn skammt af salti daglega og þegar hann verður var við skort á salti þá kemur upp þessi löngun. Þetta tekur smá tíma og þolinmæði en á endanum þá hættir þessi löngun í saltaðan mat að angra þig.
Náttúrulegt salt inniheldur mikið af steinefnum sem finnast ekki í hinu hefðbundna borðsalti. Ef þig langar í eitthvað saltað og ert ekki með neinn undirliggjandi sjúkdóm þá eru salt langanir þínar ekki vegna steinefnaskorts.
Að fá sér saltaðan mat leysir þessa löngun í smá tíma en um leið og líkaminn vill meira salt þá kemur þessi löngun aftur og líkaminn nær ekki að nýta steinefnin sem að saltaði maturinn ætti að innihalda.
Löngun í salt má einnig tengja til vökvataps í líkamanum
Þegar við svitnum þá tapar líkaminn salti.
Ef þú hefur sterka löngun í salt eftir æfingu eða á heitum sumardögum þá hefur líkaminn að öllum líkindum tapað slatta af steinefnum. Gott er að fá sér steinefnaríkan drykk til að bæta upp þetta tap. Alls ekki tapa þér í eitthvað saltað eins og franskar kartöflur eða álíka.
Læknisfræðilegar ástæður fyrir löngun í salt
Löngun í salt getur verið ástæða alvarlegs undirliggjandi sjúkdóms. Löngun í salt er oft tengd við nýrnasjúkdóma eins og…
Lesa meira HÉR