Hvernig væri að skella í eina góða bananaköku um helgina!
Þessi hér slær pottþétt í gegn enda blandast hér saman bananar og Nutella – og það getur nú tæpast klikkað.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur uppskrift að Nutellabananaköku.
Það sem þarf
- 2 bollar hveiti
- ¾ tsk matarsódi
- ½ tsk salt
- ¼ bolli mjúkt smjör
- 1 bolli sykur
- 2 stór egg
- 1¼ bolli stappaður þroskaður banani
- 1 tsk vanilludropar
- ⅓ bolli mjólk
- ¾ bolli Nutella
Aðferð
Hitið ofninn í 175° og smyrjið formkökuform.
Hrærið saman sykur og smjör.
Bætið eggjum, einu í einu, saman við og hrærið vel á milli.
Bætið stöppuðum bönunum, mjólk og vanilludropum saman við og hrærið þar til hefur blandast vel.
Setjið hveiti, matarsóda og salt út í og vinnið saman í slétt deig (passið að ofhræra ekki deigið).
Setjið Nutella í skál og hitið í 15 sek í örbylgjuofni. Hrærið aðeins í skálinni til að jafna hitann og bætið síðan 1 bolla af deiginu saman við.
Hrærið þar til hefur blandast vel.
Setjið helming af ljósa deiginu í botninn á formkökufominu, setjið síðan brúna deigið yfir og endið á seinni helmingnum af ljósa deiginu. Stingið hnífi í deigið og snúið honum aðeins um formið til að snúa ljósa og brúna deiginu aðeins saman.
Setjið formið í ofninn og bakið í 50-60 mínútur, eða þar til prjóni sem hefur verið stungið í kökuna kemur hreinn upp.
Látið kökuna standa í forminu í amk 15 mínútur áður en hún er tekin úr því.