Margir kannast við það að prófa alltaf það nýjasta í líkamsrækt hverju sinni.
Hér er skemmtilegt myndband sem sýnir allt það sem hefur verið heitast og vinsælast hverju sinni undanfarin hundrað ár í líkamsræktinni. Hvert æðið á fætur öðru hefur gengið yfir.
Þarna eru m.a. húlahringir, tvist, jazzleikfimi, legghlífar og svitabönd. Og svo auðvitað það sem hefur verið hvað vinsælast undanfarin ár.