Máttur förðunarinnar er ótrúlegur og það sem má gera með réttum snyrtivörum er alveg með ólíkindum.
Það má fela allar misfellur og bæta annað upp og ýta undir það sem við viljum leggja áherslu á í útliti okkar.
80 ára glamúr-amma
Þessi kona hér er 80 ára gömul og hún elskar að láta barnabarn sitt farða sig. Myndir af henni hafa farið um netheima undanfarið og vakið mikla athygli. Hún heitir Livia og býr á elliheimili í Króatíu – og er núna aðalskvísan á heimilinu. Nema hvað!
Barnabarn hennar, förðunarfræðingurinn Tea, á heiðurinn af þessari breytingu á ömmunni. En hún hefur lengi notað ömmuna sem fyrirsætu til að æfa sig. Tea segir að það taki hana 45 mínútur að breyta ömmunni í þessa glamúrdömu. En amman gengur nú undir nafninu Glam-Ma.
Alltaf jafn hissa
Tea setur myndir af ömmu sinni á Instagram-síðu sína en þar hófst þetta allt. Amman er alsæl með þetta og í hvert skipti sem hún lítur í spegilinn eftir förðunina er hún alltaf jafn hissa. Livia hefur ætíð fylgst vel með nýjum straumum og stefnum og hefur gaman af því að grínast enda er hún yfirhöfuð kát og glöð segir Tea.
Þetta er nokkuð magnað!