Ef ykkur finnst gott þegar einfalt og þurrt haframjöl mætir ljúffengu smjöri og súkkulaði þá eigið þið eftir að elska þessa hafrabombu hér. Hún hefur nefnilega þetta allt og ekki skemmir fyrir að hún er stútfull af Mars-súkkulaði.
Bráðnar í munni
Þessi uppskrift er ofureinföld og kakan hreinlega bráðnar í munninum. Og hún verður enn betri borin fram með léttþeyttum rjóma eða vanilluís.
Uppskriftina að þessu ljúfmeti gaf hún Lilja Katrín á blaka.is okkur.
Það sem þarf
225 gr Mars (skorið í litla bita)
¼ bolli rjómi
1 bolli haframjöl
1 bolli Kornax-hveiti
5 msk ljós púðursykur
½ tsk matarsdói
½ tsk sjávarsalt
140 gr mjúkt smjör (skorið í litla bita)
½ bolli 56% súkkulaði, grófsaxað
Aðferð
Hitið ofninn í 175°C.
Setjið bökunarpappír í kassalaga form, 20 x 20 sentímetra, og leyfið honum að koma upp á hliðunum svo auðvelt verði að taka kökuna úr forminu. Smyrjið formið líka.
Setjið Mars og rjóma í pott og bræðið saman yfir lágum hita. Þegar allt er blandað vel saman takið þá pottinn af hellunni og leyfið blöndunni að kólna.
Blandið þurrefnunum saman í skál.
Bætið smjörinu við og blandið því saman við þurrefnin með gaffli eða fingrunum þar til blandan líkist grófu mjöli.
Setjið helminginn af smjörblöndunni í botninn á forminu og þrýstið henni vel niður. Bakið í tuttugu mínútur og leyfið botninum að kólna aðeins.
Dreifið súkkulaðinu yfir botninn og hellið síðan Mars-blöndunni yfir það.
Því næst er restin af smjörblöndunni sett ofan á og herlegheitin bökuð í 20 til 25 mínútur til viðbótar.
Best er að leyfa þessari að kólna aðeins áður en hún er borin fram.
En svo er hún að sjálfsögðu borin fram með rjóma eða vanilluís.