Maður er aldrei of gamall til að hafa gaman og gera eitthvað skemmtilegt. Og þessi 90 ára skvísa sýnir og sannar að maður er heldur aldrei of gamall til að spóka sig um í flottu bikini.
Hvöttu hana til að fá sér eitthvað unglegt
Irene Carney sem býr á hjúkrunarheimili í Ástralíu fór fyrir skemmstu í ferðalag með fjölskyldu sinni. En áður en hún fór í siglinguna hvöttu vinir hennar og umönnunaraðilar á hjúkrunarheimilinu hana til þess að fá sér flott sundföt – eitthvað svolítið unglegt.
Irene gekk í verkið og fann þetta æðislega rauða og hvíta doppóta bikini frá ástralska framleiðandum Seafolly.
Og myndin fer eins og eldur í sinu um netið
Í fríinu stillti hún sér síðan upp íklædd flottu sundfötunum og lét smella af sér mynd. Og síðan hefur myndin af þessari spræku konu farið um netið eins og eldur í sinu.
Við pant viljum fá að vera svona sprækar og flottar um nírætt 🙂