Það er eiginlega alveg með ólíkindum hvað klipping og góð snyrting getur gert. Josh hafði ekki í farið í klippingu né rakað sig í … ja ansi mörg ár.
Heidi, unnustu Josh, fannst hann vera eins og hellisbúi og var margbúin að biðja hann um að taka aðeins af öllu þessi hári.
Var í vandræðum með að kyssa hann
Heidi sagðist hafa verið í vandræðum með að kyssa hann því hún vissi varla hvar munnurinn á honum væri fyrir öllu þessu hári. Og svo mundi hún varla hvernig hann raunverulega leit út. En Josh mátti ekki heyra á það minnst að láta taka aðeins af hárinu og skegginu.
Að lokum lét hann þó tilleiðast og með hjálp Oprah Winfrey og þó aðallega Tim Gunn fékk Josh nýtt útlit.
Og sá er aldeilis flottur!
Sjáðu breytinguna hér í myndbandinu.