Við ætlum að reyna að leysa þessi vandamál sem koma ansi oft upp þegar tveir aðilar deila rúmi.
Þú getur lært að deila rúmi með hrjótara, þessum sem stelur alltaf sænginni, þeim sem sparkar í svefni og fleira. Við viljum bjarga sambandinu og geðheilsu þinni.
Góð ráð til að deila rúmi
Að ná góðum nætursvefni getur oft verið nógu erfitt þegar þú sefur ein/n. Bættu við þetta, áskoruninni að sofa með maka sem hrýtur, stelur sænginni eða getur bara sofnað út frá sjónvarpinu eða tölvunni. Makinn gæti líka haft út á þínar svefnvenjur að setja svo já, það er engin furða að oft eftir nóttina er innistæðan allt of lítill svefn.
1. Hroturnar í makanum halda fyrir þér vöku
Um 37 milljón fullorðinna í Bandaríkjunum hrjóta reglulega samkvæmt the National Sleep Foundation. Og auðvitað koma allar þessar hrotur illa við makann sem deilir rúmi með þeim sem hrjóta.
Karlmenn eru mun líklegri til að hrjóta og hrotur versna yfirleitt með aldrinum. Oft má kenna meltingunni um hrotur, einnig áfengisneyslu fyrir svefninn. Og að sofa á bakinu getur einnig verið orsökin, sem er ástæðan fyrir því að maki þinn rúllar þér á hlið byrjir þú að hrjóta.
Ef hroturnar aukast þá er um að gera að leita aðstoðar hjá lækni.
2. Ykkur kemur ekki saman um hitastig í svefnherberginu
Hitastig sem mælt er með í svefnherberginu er á bilinu 20 -22 gráður. En sumir vilja hafa mjög heitt á meðan makinn vill kannski hafa svalt herbergi.
Til að leysa þetta þá má fara milliveginn auðvitað. Einnig getur sá aðili er vill hafa heitt, sofið í náttfötum og haft auka teppi. Má líka taka fram að þeim mun stærra sem rúmið ykkar er þeim mun meira pláss hefur hvor einstaklingur og eru líkur á of heitu rúmi því minni.
3. Börnin trufla nætursvefninn
Þegar hjónum kemur ekki saman um það hvernig skal höndla málin þegar kemur að börnunum þá getur allt farið í bál og brand. Má nefna barn sem vaknar við vondan draum og vill fá að koma upp í en annar aðilinn í sambandinu segir nei á meðan hinn aðilinn leyfir barninu að koma upp í og sofa þar það sem eftir lifir nætur. Þetta orsakar iðulega slæman nætursvefn fyrir foreldra. Börn eiga það til að sparka og hreyfa sig mikið í svefni þannig að morguninn eftir eru foreldrarnir uppgefnir.
Þetta mál þarf að leysa á jákvæðan hátt og báðir aðilar verða að vera á sömu blaðsíðu þegar kemur að uppeldi barna sinna.
4. Þið viljið mismunandi rúmdýnu
Sumir vilja mjúka dýnu á meðan aðrir velja þessa stífu. Og sem betur fer þá hafa dýnuframleiðendur tekið eftir þessu og eru farnir að framleiða eftir sér óskum fólks dýnur sem eru þá sem dæmi mjúk öðru megin og stíf hinu megin.
Þetta mál er auðveldlega leyst á þennan máta.
5. Þið farið að sofa á sitthvorum tímanum
Þetta getur oft verið ansi erfitt. Okkar innri klukka segir okkur til um hvenær best er fyrir okkur að fara að sofa og vakna á morgnana. En þessi klukka er ekki stillt eins fyrir alla. Besta leiðin til að leysa þetta mál er…
HÉR má lesa greinina í heild sinni