Það getur verið erfitt að eiga við þunnt hár og að ná fyllingu í það. En ekkert er ómögulegt og oftast má finna lausn við öllu.
Hér eru góð en einföld ráð sem geta breytt útliti hársins og hvernig er að eiga við það.
Sex trix sem láta hárið líta út fyrir að vera þykkara
1. Klipptu styttur í hárið
Láttu klippa hárið í styttur – en það þarf að vanda vel til verka og gera hárgreiðslukonunni/manninum það ljóst að klippa eigi hárið svo það virki þykkara.
Ekki láta nota þynningarskæri eða rakvél í hárið því það getur látið hárið virka úfið og reitt.
2. Láttu klippa á þig þvertopp
Það getur gefið hárinu meiri fyllingu að láta klippa á sig þvertopp sérstaklega ef hárið er þykkara að framan og þynnra á hvirflinum.
3. Hafðu sídd hársins fyrir ofan axlir
Þegar hárið fellur á axlirnar og línan brotnar upp getur það látið hárið virðast þynnra. Ef það er klippt styttra lítur það út fyrir að vera þykkara.
4. Skoðaðu það að fá þér strípur
Það getur hjálpað að setja strípur í hárið þar sem þær veita vissa fyllingu. En strípurnar mega ekki vera of ólíkar þínum eigin háralit. Láttu hárgreiðslukonuna/manninn vita að með því að setja strípur sértu að leita eftir meiri fyllingu í hárið.
5. Hvernig hárið er blásið skiptir máli
Ekki blása hárið of mikið. Leyfðu því að þorna 80 prósent áður en þú notar blásarann á það. Notaðu síðan hringbursta til að lyfta hárinu frá rótinni og til að mýkja og slétta endana.
Sniðugt er að greiða hárið ekki á þá hlið sem þú venjulega gerir heldur á hina hliðina áður en þú blæst það og skiptu svo á rétta hlið þegar búið er að blása hárið. Þannig fæst ákveðin fylling og líf í hárið.
6. Notaðu kvoðu og slík efni
Í dag eru til svo góð hárefni eins og kvoður sem gefa fyllingu og lyfta rótinni. En ekki nota þung gel eða krem sem gera hárið þungt og jafnvel líflaust.