Afmælisveislan okkar heldur áfram í mars og við höldum áfram að gleðja lesendur okkar og færa þeim gjafir – en Kokteill varð eins ár þann 5. mars.
Nú ætlum við að gefa tveimur heppnum sitt hvort tækið frá Babyliss. Annars vegar er um að ræða Twist Secret og hins vegar Curl Secret.
Þetta er auðvitað frábært í pakkann handa fermingarbarninu.
Twist Secret
Í dag eru fléttur og snúningar mjög vinsælir og er endalaust hægt að leika sér með hvoru tveggja. Þess vegna er þetta frábæra nýja tæki, Twist Secret, frá BaByliss svo ótrúlega sniðugt. Þetta er eitt það nýjasta í tækjum fyrir hárið og býður upp á óteljandi möguleika.
Í rauninni er ekki hægt að skilgreina tækið á einn ákveðinn hátt þar sem notagildið fer algjörlega eftir þínu eigin hugmyndaflugi. En í grófum dráttum þá er Twist Secret hártæki sem vefur upp á hárið á afar fljótlegan og auðveldan hátt. Í nokkrum einföldum skrefum býrðu til vafninga og krullur eins og þig lystir. Þetta er bara spurning um að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og prófa eitthvað nýtt.
Sjáðu hér að neðan hvernig má meðal annars nota tækið
Curl Secret
Og svo er það Curl Secret tækið en okkur finnst að það ætti að vera staðalbúnaður hjá öllum k0num. Það sparar bæði tíma og fyrirhöfn … og er ótrúlega einfalt í notkun. Fyrst að við ráðum auðveldlega við það með okkar þumalputta þá ráða allir við það. Svo býr það til alveg ótrúlega fallegar krullur.
Við hér á Kokteil urðum mjög glaðar þegar þetta snilldartæki kom á markaðinn því við erum nefnilega algjörir klaufar með krullujárnið en þetta tæki hins vegar leikur í höndunum á okkur.
Og það sem þetta blessaða tæki hefur bjargað okkur oft. Slæmir hárdagar tilheyra einfaldlega sögunni til.
Sjáðu hér að neðan hvað þetta er einfalt
Gefum tveimur heppnum sitt hvort tækið
Í samstarfi við BaByliss á Íslandi ætlum við að gefa þessi 2 tæki.
Frábær afmælisgjöf frá okkur til ykkar (verðmæti tækjanna er um 30.000 kr.)
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessum pósti síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum Twist Secret tækið út fimmtudaginn 17. mars og Curl Secret tækið miðvikudaginn 22. mars.
Vertu með í pottinum!